Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 693. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 1051  —  693. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um niðurrif á stíflumannvirki Steingrímsstöðvar við Efra-Sog.

Flm.: Magnús Þór Hafsteinsson.



    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að beita sér fyrir því í krafti eignarhluta ríkisins í Landsvirkjun að stíflumannvirki Steingrímsstöðvar við Efra-Sog verði rifið og að umhverfi stíflunnar verði fært í sitt náttúrulega horf.

Greinargerð.


    Steingrímsstöð við Efra-Sog var byggð á árunum 1958–60. Með þessari virkjun var Efra- Sog, hið náttúrulega frárennsli Þingvallavatns og langvatnsmesta lindá Íslands, stíflað. Síðan hefur ein mikilfenglegasta náttúruperla þessa lands vart verið nema svipur hjá sjón. Stíflan sér til þess að vatn sem áður streymdi úr Þingvallavatni um þröngan farveg Efra-Sogs er nú að mestu leitt gegnum jarðgöng til rafmagnsframleiðslu í Steingrímsstöð á bökkum Úlfljótsvatns. Ljósmyndir af Efra-Sogi teknar fyrir og eftir stíflugerðina sýna að ásýnd árfarvegsins þar sem áður streymdi tilkomumikið og tært bergvatn er ekki svipur hjá sjón. Stíflun Efra- Sogs hafði einnig afdrifaríkar afleiðingar fyrir vistkerfi og lífríki Efra-Sogs, Þingvallavatns og jafnvel Úlfljótsvatns. Mjög dró úr bitmýi sem gegnir lykilhlutverki í fæðukeðjunni í lífríki við Þingvallavatn. Einstæður stofn Þingvallaurriðans varð fyrir þungu áfalli sem enn sér hvergi fyrir endann á. Hrygningarstöðvar urriðans við efra mynni Efra-Sogs voru eyðilagðar og aðgengi hans hindrað að mikilvægum uppeldisstöðvum fyrir seiði í Efra-Sogi. Þetta var mjög alvarlegt tilræði við möguleika stofnsins til endurnýjunar. Urriðinn gegnir mikilvægu vistfræðilegu hlutverki í Þingvallavatni og því er hningnun hans mun alvarlegra mál en virðast kann við fyrstu sýn. Hætt er við að Þingvallaurriðinn muni smám saman hverfa úr vistkerfi vatnsins eftir því sem árin líða og stofninn býr við skerta möguleika til tímgunar vegna stíflunnar við Streingrímsstöð. Markmið þessarar tillögu er að stuðla að því að endurheimta eina af helstu náttúruperlum Suðurlands, sem er Efra-Sog og lífríki þess áður en Steingrímsstöð var reist. Slík aðgerð yrði þjóðinni til sóma og fyrirmyndar á alþjóðavettvangi þar sem sýnt væri fram á í verki að virkjanir fallvatna sem valdið hafa skaða á náttúrunni geta verið afturkræfar. Endurheimt umhverfis og lífríkis náttúrunnar á þessum slóðum mundi einnig án efa veita mikilvæg sóknarfæri á sviði frístundaveiði og ferðamennsku, og þannig verða heimamönnum og gestum til ánægju og yndisauka um ókomna tíð.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



    Kort:    Mynd sem sýnir staðsetningu Steingrímsstöðvar og stíflu hennar við Þingvallavatn, Efra-Sog og Úlfljótsvatn. (Heimild: Bókin Urriðadans eftir Össur Skarphéðinsson. Mál og menning, 1996.)