Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 736. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 1098  —  736. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um tafir á vegaframkvæmdum.

Frá Önnu Kristínu Gunnarsdóttur.



    Eru dæmi um að vegaframkvæmdir hafi dregist fram yfir áramót vegna þess að undirbúningi framkvæmda hefur ekki verið lokið í tæka tíð? Ef svarið er jákvætt, hvaða helstu framkvæmdir er um að ræða og hvað tefur helst fyrir í undirbúningsvinnunni?