Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 491. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 1105  —  491. mál.




Svar



forsætisráðherra við fyrirspurn Sigurjóns Þórðarsonar um kostnað við lögfræðiálit.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hvað greiddi forsætisráðuneytið fyrir lögfræðiálit Eiríks Tómassonar frá 23. janúar sl., sem samið var fyrir ráðuneytið, um lögmæti ákvörðunar um að styðja tafarlausa afvopnun Íraks?

    Því er til að svara að þóknun fyrir umrætt lögfræðiálit nam 74.700 kr. að meðtöldum virðisaukaskatti og hefur ráðuneytið innt þann kostnað af hendi.