Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 741. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 1106  —  741. mál.




Fyrirspurn



til utanríkisráðherra um stuðning við börn á alþjóðavettvangi.

Frá Rannveigu Guðmundsdóttur.



     1.      Hver er afstaða ráðherra til þess að íslensk stjórnvöld móti stefnu um að sú aðstoð sem landið veitir á alþjóðavettvangi beinist að börnum?
     2.      Sér ráðherra meinbugi á að slík stefna sé mótuð?