Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 743. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 1108  —  743. mál.




Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um kanínubyggð í Vestmannaeyjum.

Frá Magnúsi Þór Hafsteinssyni.



     1.      Hafa farið fram rannsóknir á áhrifum kanína á fuglalíf í Vestmannaeyjum og ef svo er, hverjar eru þá helstu niðurstöður þeirra?
     2.      Hafa stjórnvöld aðhafst eitthvað til að stemma stigu við útbreiðslu kanína í Vestmannaeyjum?
     3.      Hyggjast stjórnvöld grípa til aðgerða til að útrýma kanínum í Vestmannaeyjum?