Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 747. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 1112  —  747. mál.




Fyrirspurn



til dómsmálaráðherra um framkvæmd barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

Frá Rannveigu Guðmundsdóttur.



     1.      Hver voru meginatriði álits eftirlitsnefndar Sameinuðu þjóðanna vegna skýrslu Íslands um framkvæmd barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna frá janúar 2003?
     2.      Hvað taldi nefndin að helst mætti bæta í framkvæmd sáttmálans hérlendis?
     3.      Til hvaða aðgerða hefur ríkisstjórnin gripið til að koma til móts við athugasemdir nefndarinnar?
     4.      Hvað hefur ríkisstjórnin gert til að kynna álit eftirlitsnefndar Sameinuðu þjóðanna?


Skriflegt svar óskast.