Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 749. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 1114  —  749. mál.




Fyrirspurn



til dómsmálaráðherra um þróun fjárframlaga til lögreglunnar á Akureyri.

Frá Láru Stefánsdóttur.



     1.      Hvernig hafa fjárframlög til lögreglunnar á Akureyri þróast árin 1995–2004, sundurliðað eftir framlögum til löggæslu, tollgæslu og rannsóknarlögreglu, og hvernig hefur fjöldi lögreglu- og rannsóknarlögreglumanna þróast miðað við fólksfjölda?
     2.      Hve mörg afbrotamál komu upp á Akureyri árin 1995–2004 og hvernig skiptast þau milli ára og tegunda brota?


Skriflegt svar óskast.