Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 767. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 1139  —  767. mál.




Fyrirspurn



til viðskiptaráðherra um stærð verslunarhúsnæðis.

Frá Rannveigu Guðmundsdóttur.



     1.      Liggja fyrir upplýsingar um heildarstærð verslunarhúsnæðis hér á landi og ef svo er, hve margir fermetrar eru á hvern mann?
     2.      Hvernig er þessu háttað í nálægum löndum?
     3.      Er meira fjárfest í verslunarhúsnæði hér á landi en í grannlöndunum?


Skriflegt svar óskast.