Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 769. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 1141  —  769. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um stuðning við landbúnað og matvöruverð.

Frá Rannveigu Guðmundsdóttur.



     1.      Hver er afstaða ráðherra til þess að teknar verði upp beinar greiðslur úr ríkissjóði til stuðnings landbúnaði í stað tolla á innfluttar búvörur í því skyni að lækka matvöruverð?
     2.      Telur ráðherra að ríkisstuðningur verði sýnilegri og fyrirsjáanlegri með beinum greiðslum í stað tolla?
     3.      Hafa þessi mál verið til skoðunar í ráðuneytinu?


Skriflegt svar óskast.