Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 772. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 1144  —  772. mál.




Fyrirspurn



til iðnaðarráðherra um kannanir á viðhorfum til orkufrekrar stóriðju.

Frá Jóni Bjarnasyni.



     1.      Hve mikið fjármagn hefur iðnaðarráðuneytið til ráðstöfunar til að kynna orkufreka stóriðju á þessu ári?
     2.      Hvað kostuðu kannanir sem ráðherra lét gera nýverið á afstöðu Norðlendinga til álvera og stórvirkjana í fjórðungnum?
     3.      Telur ráðherra að fullnægjandi mynd fáist af viðhorfum Norðlendinga til ólíkra leiða við atvinnuuppbyggingu með því að spyrja einungis um afstöðu fólks til álvera?
     4.      Hyggst ráðherra standa fyrir sambærilegum könnunum á afstöðu Norðlendinga til uppbyggingar í öðrum atvinnugreinum og taka þá fyrir eina og eina grein í senn?