Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 777. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 1151  —  777. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um Siglufjarðarveg.

Frá Kristni H. Gunnarssyni.



    Telur ráðherra að Siglufjarðarvegur, frá Fljótum um Almenninga og Strákagöng til Siglufjarðar, geti áfram verið greiðfær heilsársvegur í fyrirsjáanlegri framtíð og hvað þarf að verja miklu fé til þess að svo verði?