Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 778. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 1153  —  778. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um skráningu og eignarhald léna.

Frá Láru Stefánsdóttur.



     1.      Stendur til að setja lög um skráningu og eignarhald léna?
     2.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir lagasetningu um það hvernig skuli bregðast við þegar nöfn léna valda misskilningi eða vandræðum?


Skriflegt svar óskast.