Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 808. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 1376  —  808. mál.




Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um sérsambönd Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands.

Frá Valdimar L. Friðrikssyni.



     1.      Hefur ráðherra haldið annan samráðsfund með sérsamböndum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands? Ef ekki, hyggst ráðherra halda slíkan fund og þá hvenær?
     2.      Telur ráðherra ástæðu til að auka fjárveitingar til sérsambanda Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands? Ef svo er, hyggst ráðherra beita sér fyrir því við næstu fjárlagagerð?


Skriflegt svar óskast.