Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 617. máls.
Þskj. 1414 — 617. mál.
Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd eftirtaldar ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar og samninga EFTA-ríkjanna er varða framkvæmd samkeppnisreglna EES-samningsins:
1. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 130/2004 frá 24. september 2004, um breytingu á XIV. viðauka (Samkeppni), bókun 21 (um framkvæmd samkeppnisreglna sem gilda um fyrirtæki) og bókun 23 (um samvinnu milli eftirlitsstofnana) við EES- samninginn frá 2. maí 1992.
2. Samning EFTA-ríkjanna frá 24. september 2004 um breytingu á bókun 4 við samninginn milli EFTA-ríkjanna um stofnun eftirlitsstofnunar og dómstóls.
3. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 178/2004 frá 3. desember 2004, um breytingu á bókun 21 (um framkvæmd samkeppnisreglna sem gilda um fyrirtæki) og bókun 23 (um samvinnu milli eftirlitsstofnana) við EES-samninginn frá 2. maí 1992.
4. Samning EFTA-ríkjanna frá 3. desember 2004 um breytingu á bókun 4 við samninginn milli EFTA-ríkjanna um stofnun eftirlitsstofnunar og dómstóls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Nr. 12/131.
Þskj. 1414 — 617. mál.
Þingsályktun
um staðfestingu ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar og samninga EFTA-ríkjanna um framkvæmd samkeppnisreglna EES-samningsins.
Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd eftirtaldar ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar og samninga EFTA-ríkjanna er varða framkvæmd samkeppnisreglna EES-samningsins:
1. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 130/2004 frá 24. september 2004, um breytingu á XIV. viðauka (Samkeppni), bókun 21 (um framkvæmd samkeppnisreglna sem gilda um fyrirtæki) og bókun 23 (um samvinnu milli eftirlitsstofnana) við EES- samninginn frá 2. maí 1992.
2. Samning EFTA-ríkjanna frá 24. september 2004 um breytingu á bókun 4 við samninginn milli EFTA-ríkjanna um stofnun eftirlitsstofnunar og dómstóls.
3. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 178/2004 frá 3. desember 2004, um breytingu á bókun 21 (um framkvæmd samkeppnisreglna sem gilda um fyrirtæki) og bókun 23 (um samvinnu milli eftirlitsstofnana) við EES-samninginn frá 2. maí 1992.
4. Samning EFTA-ríkjanna frá 3. desember 2004 um breytingu á bókun 4 við samninginn milli EFTA-ríkjanna um stofnun eftirlitsstofnunar og dómstóls.
Samþykkt á Alþingi 10. maí 2005.