Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 592. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 1437 — 592. mál.
um Neytendastofu og talsmann neytenda.
Neytendastofa skal vinna að stefnumótun á sviði neytendamála auk þess sem stofnunin skal beita sér fyrir því að gerðar verði rannsóknir á sviðinu. Þá skal Neytendastofa annast söfnun, úrvinnslu og útgáfu upplýsinga á sviði neytendamála sem og önnur verkefni sem stofnuninni verða falin með lögum eða ákvörðun ráðherra.
Forstjóri skal búa yfir víðtækri þekkingu og reynslu af málefnum á starfssviði stofnunarinnar. Forstjóri stjórnar starfsemi og rekstri stofnunarinnar og ræður aðra starfsmenn.
Ráðherra getur með reglugerð sett nánari reglur um skipulag og starfsemi Neytendastofu.
Til áfrýjunarnefndar neytendamála má skjóta stjórnvaldsákvörðunum sem teknar eru samkvæmt eftirtöldum lögum:
a. lögum um eftirlit með óréttmætum viðskiptaháttum og gagnsæi markaðarins,
b. lögum um öryggi vöru og opinbera markaðsgæslu og
c. öðrum lögum á málefnasviði Neytendastofu sé heimild til slíks að finna í þeim lögum.
Skrifleg kæra skal berast áfrýjunarnefndinni innan fjögurra vikna frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun skv. 2. mgr. Úrskurður áfrýjunarnefndarinnar skal liggja fyrir innan sex vikna frá málskoti.
Úrskurðir nefndarinnar eru fullnaðarúrskurðir innan stjórnsýslunnar og eru aðfararhæfir.
Kjaranefnd ákveður laun og starfskjör talsmanns neytenda. Talsmanni neytenda er óheimilt að hafa með höndum önnur launuð störf eða takast á hendur verkefni sem eigi samrýmast starfi hans.
Neytendastofa annast dagleg störf og undirbúning mála fyrir talsmann neytenda. Talsmanni neytenda er heimilt að gera þjónustusamning við Neytendastofu um undirbúning mála fyrir embættið.
Hlutverk talsmanns neytenda felst m.a. í því að:
a. taka við erindum neytenda,
b. bregðast við þegar hann telur brotið gegn réttindum og hagsmunum neytenda,
c. gefa út rökstuddar álitsgerðir ásamt tillögum um úrbætur,
d. setja fram tillögur um úrbætur á lögum og stjórnvaldsfyrirmælum er varða neytendur sérstaklega og
e. kynna löggjöf og aðrar réttarreglur er varða neytendamál.
Talsmaður neytenda tekur ekki til meðferðar ágreining milli neytenda og seljenda, en honum ber að leiðbeina þeim sem til hans leita með slík mál um hvaða leiðir eru færar, m.a. innan stjórnsýslunnar og hjá dómstólum.
Talsmaður neytenda getur ekki krafist upplýsinga er varða öryggi ríkisins eða utanríkismál sem leynt skulu fara nema með leyfi ráðherra þess sem í hlut á.
Komi upp ágreiningur vegna ákvæðis 1. mgr. er talsmanni neytenda heimilt að leita úrlausnar dómstóla. Um málsmeðferð fer eftir lögum um meðferð einkamála.
Ráðherra getur með reglugerð sett nánari reglur um starfsemi talsmanns neytenda.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. öðlast ákvæði til bráðabirgða gildi nú þegar.
1. Lög um vog, mál og faggildingu, nr. 100/1992, með síðari breytingum: Í stað orðsins „Löggildingarstofunnar“ í 2. mgr. 5. gr. laganna, og hvarvetna annars staðar í lögunum, kemur í viðeigandi beygingarfalli: Neytendastofu.
2. Lög um alferðir, nr. 80/1994: Í stað orðsins „Samkeppnisstofnunar“ í 17. gr. laganna kemur: Neytendastofu.
3. Lög um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara, nr. 103/1994:
a. Í stað orðsins „Samkeppnisstofnun“ í 2. mgr. 2. gr. laganna kemur: Neytendastofa.
b. Í stað orðsins „Samkeppnisstofnunar“ í 3. málsl. 6. gr. laganna kemur: Neytendastofu.
c. Í stað orðsins „Samkeppnisstofnun“ í 7. gr. laganna kemur: Neytendastofa.
d. Orðin „nr. 8 25. febrúar 1993, með síðari breytingum“ í 10. gr. laganna falla brott.
4. Lög um neytendalán, nr. 121/1994, með síðari breytingum:
a. Eftirfarandi breytingar verða á 25. gr. laganna:
i. Í stað orðsins „Samkeppnisstofnun“ í 1. málsl. kemur: Neytendastofa.
ii. 2. málsl. orðast svo: Um meðferð mála hjá Neytendastofu fer samkvæmt ákvæðum laga um eftirlit með óréttmætum viðskiptaháttum og gagnsæi markaðarins að öðru leyti en því að ákvörðunum Neytendastofu um dagsektir verður ekki skotið til áfrýjunarnefndar neytendamála.
b. Eftirfarandi breytingar verða á 26. gr. laganna:
i. Í stað orðsins „Samkeppnisráð“ í 1. mgr. kemur: Neytendastofa.
ii. Í stað orðsins „Samkeppnisstofnun“ í 2. mgr. kemur: Neytendastofa.
5. Lög um lífræna landbúnaðarframleiðslu, nr. 162/1994, með síðari breytingum: Í stað orðsins „Löggildingarstofan“ í 2. mgr. 3. gr. laganna kemur: Neytendastofa.
6. Lög um öryggi vöru og opinbera markaðsgæslu, nr. 134/1995, með síðari breytingum:
a. Í stað orðsins „Löggildingarstofan“ í 7. gr. laganna, og hvarvetna annars staðar í lögunum, kemur í viðeigandi beygingarfalli: Neytendastofa.
b. Á eftir 19. gr. laganna kemur ný grein, 19. gr. a, svohljóðandi:
Ákvörðunum sem teknar eru á grundvelli laga þessara verður skotið til áfrýjunarnefndar neytendamála sem starfar á grundvelli 4. gr. laga um Neytendastofu og talsmann neytenda.
7. Lög um öryggi raforkuvirkja, neysluveitna og raffanga, nr. 146/1996: Í stað orðsins „Löggildingarstofu“ í 3. gr. laganna, og hvarvetna annars staðar í lögunum, kemur í viðeigandi beygingarfalli: Neytendastofu.
8. Lög um húsgöngu- og fjarsölusamninga, nr. 46/2000: Í stað orðsins „Samkeppnisstofnun“ í 17. gr. laganna kemur: Neytendastofa.
9. Lög um rafrænar undirskriftir, nr. 28/2001, með síðari breytingum: Í stað orðsins „Löggildingarstofa“ í 18. gr. laganna, og hvarvetna annars staðar í lögunum, kemur í viðeigandi beygingarfalli: Neytendastofa.
10. Lög um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu, nr. 30/2002: Eftirfarandi breytingar verða á 19. gr. laganna:
a. Í stað orðsins „Samkeppnisstofnun“ í 1. málsl. kemur: Neytendastofa.
b. Í stað orðsins „samkeppnislaga“ í 2. málsl. kemur: laga um eftirlit með óréttmætum viðskiptaháttum og gagnsæi markaðarins.
c. Í stað orðins „samkeppnisyfirvalda“ í 2. málsl. kemur: Neytendastofu.
11. Lög um vörur unnar úr eðalmálmum, nr. 77/2002: Í stað orðsins „Löggildingarstofu“ í 2. tölul. 2. gr. laganna, og hvarvetna annars staðar í lögunum, kemur í viðeigandi beygingarfalli: Neytendastofu.
Við samþykkt laga þessara skipar viðskiptaráðherra tveggja manna undirbúningsnefnd sem hafa skal heimild til að undirbúa gildistöku laganna, þ.m.t. að bjóða starfsmönnum Löggildingarstofu og Samkeppnisstofnunar, eftir því sem við á, annað starf hjá Neytendastofu.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 1437 — 592. mál.
Frumvarp til laga
um Neytendastofu og talsmann neytenda.
(Eftir 2. umr., 11. maí.)
1. gr.
2. gr.
Neytendastofa skal vinna að stefnumótun á sviði neytendamála auk þess sem stofnunin skal beita sér fyrir því að gerðar verði rannsóknir á sviðinu. Þá skal Neytendastofa annast söfnun, úrvinnslu og útgáfu upplýsinga á sviði neytendamála sem og önnur verkefni sem stofnuninni verða falin með lögum eða ákvörðun ráðherra.
3. gr.
Forstjóri skal búa yfir víðtækri þekkingu og reynslu af málefnum á starfssviði stofnunarinnar. Forstjóri stjórnar starfsemi og rekstri stofnunarinnar og ræður aðra starfsmenn.
Ráðherra getur með reglugerð sett nánari reglur um skipulag og starfsemi Neytendastofu.
4. gr.
Til áfrýjunarnefndar neytendamála má skjóta stjórnvaldsákvörðunum sem teknar eru samkvæmt eftirtöldum lögum:
a. lögum um eftirlit með óréttmætum viðskiptaháttum og gagnsæi markaðarins,
b. lögum um öryggi vöru og opinbera markaðsgæslu og
c. öðrum lögum á málefnasviði Neytendastofu sé heimild til slíks að finna í þeim lögum.
Skrifleg kæra skal berast áfrýjunarnefndinni innan fjögurra vikna frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun skv. 2. mgr. Úrskurður áfrýjunarnefndarinnar skal liggja fyrir innan sex vikna frá málskoti.
Úrskurðir nefndarinnar eru fullnaðarúrskurðir innan stjórnsýslunnar og eru aðfararhæfir.
5. gr.
Kjaranefnd ákveður laun og starfskjör talsmanns neytenda. Talsmanni neytenda er óheimilt að hafa með höndum önnur launuð störf eða takast á hendur verkefni sem eigi samrýmast starfi hans.
Neytendastofa annast dagleg störf og undirbúning mála fyrir talsmann neytenda. Talsmanni neytenda er heimilt að gera þjónustusamning við Neytendastofu um undirbúning mála fyrir embættið.
6. gr.
Hlutverk talsmanns neytenda felst m.a. í því að:
a. taka við erindum neytenda,
b. bregðast við þegar hann telur brotið gegn réttindum og hagsmunum neytenda,
c. gefa út rökstuddar álitsgerðir ásamt tillögum um úrbætur,
d. setja fram tillögur um úrbætur á lögum og stjórnvaldsfyrirmælum er varða neytendur sérstaklega og
e. kynna löggjöf og aðrar réttarreglur er varða neytendamál.
7. gr.
Talsmaður neytenda tekur ekki til meðferðar ágreining milli neytenda og seljenda, en honum ber að leiðbeina þeim sem til hans leita með slík mál um hvaða leiðir eru færar, m.a. innan stjórnsýslunnar og hjá dómstólum.
8. gr.
Talsmaður neytenda getur ekki krafist upplýsinga er varða öryggi ríkisins eða utanríkismál sem leynt skulu fara nema með leyfi ráðherra þess sem í hlut á.
Komi upp ágreiningur vegna ákvæðis 1. mgr. er talsmanni neytenda heimilt að leita úrlausnar dómstóla. Um málsmeðferð fer eftir lögum um meðferð einkamála.
9. gr.
10. gr.
11. gr.
Ráðherra getur með reglugerð sett nánari reglur um starfsemi talsmanns neytenda.
12. gr.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. öðlast ákvæði til bráðabirgða gildi nú þegar.
Breytingar á öðrum lögum.
13. gr.
1. Lög um vog, mál og faggildingu, nr. 100/1992, með síðari breytingum: Í stað orðsins „Löggildingarstofunnar“ í 2. mgr. 5. gr. laganna, og hvarvetna annars staðar í lögunum, kemur í viðeigandi beygingarfalli: Neytendastofu.
2. Lög um alferðir, nr. 80/1994: Í stað orðsins „Samkeppnisstofnunar“ í 17. gr. laganna kemur: Neytendastofu.
3. Lög um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara, nr. 103/1994:
a. Í stað orðsins „Samkeppnisstofnun“ í 2. mgr. 2. gr. laganna kemur: Neytendastofa.
b. Í stað orðsins „Samkeppnisstofnunar“ í 3. málsl. 6. gr. laganna kemur: Neytendastofu.
c. Í stað orðsins „Samkeppnisstofnun“ í 7. gr. laganna kemur: Neytendastofa.
d. Orðin „nr. 8 25. febrúar 1993, með síðari breytingum“ í 10. gr. laganna falla brott.
4. Lög um neytendalán, nr. 121/1994, með síðari breytingum:
a. Eftirfarandi breytingar verða á 25. gr. laganna:
i. Í stað orðsins „Samkeppnisstofnun“ í 1. málsl. kemur: Neytendastofa.
ii. 2. málsl. orðast svo: Um meðferð mála hjá Neytendastofu fer samkvæmt ákvæðum laga um eftirlit með óréttmætum viðskiptaháttum og gagnsæi markaðarins að öðru leyti en því að ákvörðunum Neytendastofu um dagsektir verður ekki skotið til áfrýjunarnefndar neytendamála.
b. Eftirfarandi breytingar verða á 26. gr. laganna:
i. Í stað orðsins „Samkeppnisráð“ í 1. mgr. kemur: Neytendastofa.
ii. Í stað orðsins „Samkeppnisstofnun“ í 2. mgr. kemur: Neytendastofa.
5. Lög um lífræna landbúnaðarframleiðslu, nr. 162/1994, með síðari breytingum: Í stað orðsins „Löggildingarstofan“ í 2. mgr. 3. gr. laganna kemur: Neytendastofa.
6. Lög um öryggi vöru og opinbera markaðsgæslu, nr. 134/1995, með síðari breytingum:
a. Í stað orðsins „Löggildingarstofan“ í 7. gr. laganna, og hvarvetna annars staðar í lögunum, kemur í viðeigandi beygingarfalli: Neytendastofa.
b. Á eftir 19. gr. laganna kemur ný grein, 19. gr. a, svohljóðandi:
Ákvörðunum sem teknar eru á grundvelli laga þessara verður skotið til áfrýjunarnefndar neytendamála sem starfar á grundvelli 4. gr. laga um Neytendastofu og talsmann neytenda.
7. Lög um öryggi raforkuvirkja, neysluveitna og raffanga, nr. 146/1996: Í stað orðsins „Löggildingarstofu“ í 3. gr. laganna, og hvarvetna annars staðar í lögunum, kemur í viðeigandi beygingarfalli: Neytendastofu.
8. Lög um húsgöngu- og fjarsölusamninga, nr. 46/2000: Í stað orðsins „Samkeppnisstofnun“ í 17. gr. laganna kemur: Neytendastofa.
9. Lög um rafrænar undirskriftir, nr. 28/2001, með síðari breytingum: Í stað orðsins „Löggildingarstofa“ í 18. gr. laganna, og hvarvetna annars staðar í lögunum, kemur í viðeigandi beygingarfalli: Neytendastofa.
10. Lög um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu, nr. 30/2002: Eftirfarandi breytingar verða á 19. gr. laganna:
a. Í stað orðsins „Samkeppnisstofnun“ í 1. málsl. kemur: Neytendastofa.
b. Í stað orðsins „samkeppnislaga“ í 2. málsl. kemur: laga um eftirlit með óréttmætum viðskiptaháttum og gagnsæi markaðarins.
c. Í stað orðins „samkeppnisyfirvalda“ í 2. málsl. kemur: Neytendastofu.
11. Lög um vörur unnar úr eðalmálmum, nr. 77/2002: Í stað orðsins „Löggildingarstofu“ í 2. tölul. 2. gr. laganna, og hvarvetna annars staðar í lögunum, kemur í viðeigandi beygingarfalli: Neytendastofu.
Ákvæði til bráðabirgða.