Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1442, 131. löggjafarþing 707. mál: álbræðsla á Grundartanga (fasteignaskattur).
Lög nr. 69 20. maí 2005.
Þingskjal 1442, 131. löggjafarþing 707. mál: álbræðsla á Grundartanga (fasteignaskattur).
Lög nr. 69 20. maí 2005.
Lög um breytingu á lögum nr. 62/1997, um heimild til samninga um álbræðslu á Grundartanga, með síðari breytingum.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 6. tölul. 1. mgr. 6. gr. laganna:- 3. og 4. málsl. orðast svo: Þá skal félagið greiða Hvalfjarðarstrandarhreppi og Skilmannahreppi fasteignaskatt sem skal vera 0,75% af 6.219 millj. kr., sem er áætlað verðmæti bygginga sem þarf til aukinnar álframleiðslu um 130 þús. lestir, miðað við byggingarvísitölu í desember 2004 (304,8). Þá skal félagið greiða Hvalfjarðarstrandarhreppi og Skilmannahreppi fasteignaskatt sem skal vera 0,75% af 1.007 millj. kr., sem er áætlað verðmæti bygginga sem þarf til aukinnar álframleiðslu um 40 þús. lestir, miðað við byggingarvísitölu í desember 2004 (304,8).
- Í stað orðanna „180 þús. lesta“ í 8. málsl. kemur: 220 þús. lesta.
- Í stað orðanna „240 þús. lesta“ í 9. málsl. kemur: 260 þús. lesta.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 11. maí 2005.