Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 785. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 1454  —  785. mál.




Svar



fjármálaráðherra við fyrirspurn Guðjóns A. Kristjánssonar um greiðslur úr Lífeyrissjóði sjómanna.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hve margir sjóðfélagar fá nú greitt úr Lífeyrissjóði sjómanna?
     2.      Hve margir sjóðfélagar greiða í sjóðinn?
     3.      Hve margir sjóðfélagar, sundurliðað eftir kyni, fá nú mánaðarlega greiddar: 0–10 þús. kr., 11–20 þús. kr., 21–30 þús. kr., 31–40 þús. kr., 41–50 þús. kr., meira en 50 þús. kr.?
     4.      Hve margir sjóðfélagar fá nú greiddar örorkubætur, sundurliðað eftir kyni, mánaðarlega á bilinu: 0–10 þús. kr., 11–20 þús. kr., 21–30 þús. kr., 31–40 þús., kr. 41–50 þús. kr., meira en 50 þús. kr.?
     5.      Hversu margir sjóðfélagar fá nú greitt samkvæmt 60 ára reglu?
     6.      Eru réttindi sjóðfélaga sambærileg við réttindi hjá hliðstæðum sjóðum?
    Svar óskast miðað við lögin eins og þau voru áður en þeim var breytt nú nýverið, þ.e. meðan sérlög giltu um Lífeyrissjóð sjómanna.


    Í árslok 2004 fengu 3.468 sjóðfélagar greitt úr sjóðnum, þar af fengu 1.522 sjóðfélagar ellilífeyri, 907 örorkulífeyri, 567 makalífeyri og 472 barnalífeyri.
    Alls greiddu 5.284 sjóðfélagar í sjóðinn á árinu 2004.
    Ekki liggja fyrir upplýsingar til þess að hægt sé að svara 3. og 4. lið fyrirspurnarinnar. Til þess að svara þeim þarf sérstaka gagnavinnslu hjá Lífeyrissjóði sjómanna.
    Alls fá 99 sjóðfélagar á aldrinum 60–65 ára greiddan ellilífeyri úr Lífeyrissjóði sjómanna.
    Réttindi sjóðfélaga í Lífeyrissjóð sjómanna eru sambærileg réttindum hjá hliðstæðum sjóðum þótt einhver munur sé á réttindum eftir sjóðum. Lífeyrissjóður sjómanna veitir þó að einhverju leyti betri réttindi en sambærilegir sjóðir, sérstaklega maka- og ellilífeyrisréttindi.