Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1483, 131. löggjafarþing 67. mál: almenn hegningarlög (bann við limlestingu á kynfærum kvenna).
Lög nr. 83 24. maí 2005.
Í þeim tilvikum sem greinir í 2. tölul. 1. mgr. skal refsað eftir íslenskum hegningarlögum fyrir brot manns, sem var íslenskur ríkisborgari eða búsettur hér á landi á verknaðarstundu, er fellur undir 218. gr. a og framið er erlendis þrátt fyrir að verknaðurinn teljist ekki refsiverður eftir lögum þess ríkis.
Hver sem með líkamsárás veldur tjóni á líkama eða heilsu stúlkubarns eða konu með því að fjarlægja kynfæri hennar að hluta eða öllu leyti skal sæta fangelsi allt að 6 árum. Nú hefur árás í för með sér stórfellt líkams- eða heilsutjón eða bani hlýst af, eða hún telst sérstaklega vítaverð vegna þeirrar aðferðar sem notuð er, og varðar brot þá fangelsi allt að 16 árum.
Ef tjón á líkama eða heilbrigði, slíkt sem í 218. gr. eða 218. gr. a getur, hlýst af gáleysi annars manns, þá varðar það sektum eða fangelsi allt að 4 árum.
Þingskjal 1483, 131. löggjafarþing 67. mál: almenn hegningarlög (bann við limlestingu á kynfærum kvenna).
Lög nr. 83 24. maí 2005.
Lög um breytingar á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940, með síðari breytingum (bann við limlestingu á kynfærum kvenna).
1. gr.
Við 5. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:Í þeim tilvikum sem greinir í 2. tölul. 1. mgr. skal refsað eftir íslenskum hegningarlögum fyrir brot manns, sem var íslenskur ríkisborgari eða búsettur hér á landi á verknaðarstundu, er fellur undir 218. gr. a og framið er erlendis þrátt fyrir að verknaðurinn teljist ekki refsiverður eftir lögum þess ríkis.
2. gr.
Síðari málsliður 1. mgr. 82. gr. laganna orðast svo: Fyrningarfrestur vegna brota samkvæmt ákvæðum 194.–202. gr. og 218. gr. a telst þó eigi fyrr en frá þeim degi er brotaþoli nær 14 ára aldri.3. gr.
Á eftir 218. gr. laganna kemur ný grein, 218. gr. a, svohljóðandi:Hver sem með líkamsárás veldur tjóni á líkama eða heilsu stúlkubarns eða konu með því að fjarlægja kynfæri hennar að hluta eða öllu leyti skal sæta fangelsi allt að 6 árum. Nú hefur árás í för með sér stórfellt líkams- eða heilsutjón eða bani hlýst af, eða hún telst sérstaklega vítaverð vegna þeirrar aðferðar sem notuð er, og varðar brot þá fangelsi allt að 16 árum.
4. gr.
Í stað orðanna „217. eða 218. gr.“ í 218. gr. a laganna, er verður 218. gr. b, kemur: 217., 218. eða 218. gr. a.5. gr.
219. gr. laganna orðast svo:Ef tjón á líkama eða heilbrigði, slíkt sem í 218. gr. eða 218. gr. a getur, hlýst af gáleysi annars manns, þá varðar það sektum eða fangelsi allt að 4 árum.
6. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 11. maí 2005.