Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 132. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 132  —  132. mál.




Fyrirspurn



til landbúnaðarráðherra um garðyrkjumenntun að Reykjum í Ölfusi.

Frá Margréti Frímannsdóttur.



     1.      Hver eru áform ráðherra um garðyrkjumenntun að Reykjum í Ölfusi, sem heyrir nú undir Landbúnaðarháskóla Íslands?
     2.      Hver eru áform ráðherra varðandi endurbætur og uppbyggingu húsnæðis skólans að Reykjum og hvenær hefjast framkvæmdir?