Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 133. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 133  —  133. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um skiptingu kostnaðar vegna viðbyggingar við sjúkrahúsið á Selfossi.

Frá Margréti Frímannsdóttur.



    Hefur ágreiningur um skiptingu kostnaðar milli ríkisins og sveitarfélagsins Árborgar vegna viðbyggingar við sjúkrahúsið á Selfossi verið leystur? Ef svo er, á hvern hátt? Ef ekki, hver er tillaga ráðherra að lausn deilunnar?