Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 150. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 150  —  150. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um veggjöld.

Frá Jóhanni Ársælssyni.



     1.      Hvað líður stefnumörkun um gjaldtöku vegna samgöngumannvirkja, þ.e. veggjöld, sem ráðherra hefur ítrekað boðað að sé í vændum?
     2.      Hvenær kemur til framkvæmda boðuð lækkun virðisaukaskatts á veggjald í Hvalfjarðargöngum?