Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 152. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 152  —  152. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um afsláttarkort vegna lækniskostnaðar.

Frá Ástu R. Jóhannesdóttur.



     1.      Hvaða aðgerða er þörf svo að afsláttarkort vegna lækniskostnaðar berist fólki sjálfkrafa þegar hámarksgreiðslum er náð?
     2.      Eru uppi áform um að Tryggingastofnun ríkisins taki upp slíkt kerfi?
     3.      Hvað mundi kosta að koma slíku kerfi á?