Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 155. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 155  —  155. mál.




Fyrirspurn



til dómsmálaráðherra um viðbúnað Landhelgisgæslunnar.

Frá Ástu R. Jóhannesdóttur.



     1.      Hefur farið fram sérstakur undirbúningur hjá Landhelgisgæslunni fyrir aukið eftirlit með skipaflutningum og siglingum þegar siglingaleiðir opnast um norðurheimskautið?
     2.      Hvernig er Landhelgisgæslan í stakk búin til að bregðast við ef slys eða óhöpp verða, t.d. við olíuflutninga?