Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 156. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 156  —  156. mál.




Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um afleiðingar hlýnunar og viðbrögð við þeim.

Frá Ástu R. Jóhannesdóttur.



     1.      Hvað hefur verið gert af hálfu ráðuneytisins til að bregðast við afleiðingum hlýnunar á norðurskautinu og aukinni skipaumferð um heimskautasvæðið?
     2.      Hafa áhrif hlýnunarinnar á Ísland verið metin?