Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 195. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 195  —  195. mál.




Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um kynbundið ofbeldi.

Frá Kolbrúnu Halldórsdóttur.



     1.      Hyggst ráðherra verða við tilmælum um aukin félagsleg úrræði til
                  a.      fórnarlamba heimilisofbeldis,
                  b.      þeirra sem beita slíku ofbeldi?
     2.      Hvaða verkefnum er unnið að á vegum ráðuneytisins til að fyrirbyggja kynbundið ofbeldi, svo sem á sviði almennrar fræðslu?