Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 202. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 202  —  202. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um herflugvélar yfir Reykjavík 16. september 2005.

Frá Merði Árnasyni.



     1.      Hafa stjórnvöld brugðist með einhverjum hætti við hávaðaflugi fjögurra breskra herflugvéla fyrir lendingu á Reykjavíkurflugvelli 16. september síðastliðinn, og þá hverjum?
     2.      Má eiga von á frekara lágflugi herflugsveita yfir miðborg Reykjavíkur og íbúðarsvæðin umhverfis?