Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 204. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 204  —  204. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um ráðstafanir vegna hugsanlegs Kötlugoss.

Frá Halldóri Blöndal.



     1.      Hafa verið gerðar ráðstafanir til að tryggja vegasamgöngur ef til eldgoss kemur í Kötlu?
     2.      Telur ráðherra skynsamlegt að flýta brúargerð yfir Jökulsá á Fjöllum vegna hættu á að vegasamband um Suðurland rofni í slíkum eldsumbrotum?