Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 227. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 227  —  227. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um breikkun Suðurlandsvegar.

Frá Björgvini G. Sigurðssyni.



     1.      Var gert ráð fyrir því við hönnun á breikkun Suðurlandsvegar að víraleiðari yrði notaður til að skilja á milli akreina þar sem vegurinn verður þríbreiður (2+1)?
     2.      Hve breiðar verða vegaxlirnar og hve mikill verður hallinn niður af veginum á hverja 6 metra út?
     3.      Hver er meðalbreidd vegaxla á þríbreiðum vegum með víraleiðara í Svíþjóð og hver er meðalhallinn niður af vegunum á hverja 6 metra út?
     4.      Liggur fyrir áætlun um hvenær breikkun Suðurlandsvegar lýkur?