Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 249. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 249  —  249. mál.




Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um mannaráðningar hjá Ríkisútvarpinu.

Frá Sigurjóni Þórðarsyni.



    Hversu margir og hvaða starfsmenn hafa verið ráðnir án auglýsingar til Ríkisútvarpsins til þess að sjá um dagskrárgerð og fréttatengt efni í sjónvarpi á sl. 10 árum? Óskað er eftir að sundurgreint verði í svarinu til hvaða þátta fólk hefur verið ráðið.


Skriflegt svar óskast.