Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 256. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 269  —  256. mál.




Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um jafnréttisfræðslu fyrir ráðherra og stjórnendur opinberra stofnana.

Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.


    Hvað hefur ráðherra gert til að hrinda í framkvæmd fræðslu um jafnréttismál fyrir stjórnendur og starfsmenn ráðuneyta og að koma á jafnréttisfræðslu fyrir pólitískt kjörna fulltrúa hjá framkvæmdarvaldinu?