Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 259. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 272  —  259. mál.




Fyrirspurn



til iðnaðarráðherra um verð á heitu vatni.

Frá Sigurjóni Þórðarsyni.



     1.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að orkunotendur geti borið saman verð á milli hitaveitna RARIK? Ef svo er, þá hvenær?
     2.      Hverjar eru helstu forsendur fyrir mismunandi orkuverði hjá hitaveitum RARIK sem nota jarðvarma?