Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 263. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 276  —  263. mál.




Fyrirspurn



til ráðherra Hagstofu Íslands um útgáfu talnaefnis um umhverfismál.

Frá Kolbrúnu Halldórsdóttur.



     1.      Hvað líður útgáfu Hagstofunnar á riti á borð við Umhverfistölur sem út kom árið 1997?
     2.      Er að vænta reglulegrar skýrslugjafar um umhverfismál frá stofnuninni?