Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 275. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 289  —  275. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um viðhald vegarins á milli Ísafjarðar og Bolungarvíkur.

Frá Önnu Kristínu Gunnarsdóttur.



     1.      Hver hefur verið árlegur kostnaður við viðhald vegarins á milli Ísafjarðar og Bolungarvíkur sl. fimm ár?
     2.      Hver var viðhaldskostnaðurinn
                  a.      vegna ofanhruns,
                  b.      vegna sjávarrofs og hruns úr vegi?
     3.      Hvernig skiptist fyrrgreindur kostnaður á
                  a.      þann kafla sem fyrirhugað er að leggist af við gerð jarðganga samkvæmt núverandi hugmyndum,
                  b.      aðra hluta vegarins sem verða áfram í núverandi vegstæði?