Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 325. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 357  —  325. mál.




Fyrirspurn



til sjávarútvegsráðherra um dragnótaveiðar í Faxaflóa.

Frá Guðjóni Guðmundssyni.



     1.      Hve mikill dragnótarafli barst á land úr Faxaflóa sl. fjögur fiskveiðiár, sundurliðað eftir árum og fisktegundum?
     2.      Hverjar voru aflaheimildir og afli einstakra báta, sundurliðað eftir árum?
     3.      Hvar var aflanum landað og hve miklu á hverjum löndunarstað, sundurliðað eftir árum?


Skriflegt svar óskast.