Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 330. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 362  —  330. mál.




Fyrirspurn



til dómsmálaráðherra um endurbætur á varðskipinu Ægi.

Frá Sigurjóni Þórðarsyni.



     1.      Hver var heildarkostnaður við endurbætur á varðskipinu Ægi sem lauk í haust í Póllandi? Svarið óskast sundurliðað eftir kostnaði við endurbætur, eftirlit, siglingu til og frá Póllandi og ferðakostnað.
     2.      Upp á hvaða upphæð hljóðaði tilboð Slippstöðvarinnar á Akureyri í sömu endurbætur á Ægi?


Skriflegt svar óskast.