Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 339. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 373  —  339. mál.




Fyrirspurn



til iðnaðarráðherra um atvinnumál á Ísafirði.

Frá Kristni H. Gunnarssyni.



     1.      Hyggst ráðherra bregðast við ákvörðun Símans um að loka starfsstöð fyrirtækisins Já á Ísafirði í ljósi þess að ríkisstjórnin hefur þá stefnu að efla Ísafjörð sem byggðakjarna?
     2.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir fjárveitingu til atvinnuuppbyggingar á Ísafirði til mótvægis við samdrátt sem leitt hefur af sölu Símans?