Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 358. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 392  —  358. mál.




Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um stúdentspróf.

Frá Önnu Kristínu Gunnarsdóttur.



     1.      Hve langan tíma tekur nám til stúdentsprófs að meðaltali hjá öllum nemendum annars vegar og hins vegar að frátöldum fjarnemum?
     2.      Hve langan tíma tekur námið að meðaltali í fjölbrautaskólum annars vegar og menntaskólum hins vegar, að frátöldum fjarnemum?