Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 397. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 499  —  397. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um rannsóknir á þunglyndi meðal eldri borgara.

Flm.: Ágúst Ólafur Ágústsson, Margrét Frímannsdóttir, Ásta R. Jóhannesdóttir,
Guðrún Ögmundsdóttir, Jón Gunnarsson, Kristján L. Möller, Katrín Júlíusdóttir,
Anna Kristín Gunnarsdóttir, Valdimar L. Friðriksson, Björgvin G. Sigurðsson,
Þórunn Sveinbjarnardóttir.


    Alþingi ályktar að fela heilbrigðisráðherra að skipa nefnd sem rannsaki þunglyndi meðal eldri borgara og meti umfang þess. Nefndin kanni sérstaklega tíðni sjálfsvíga og sjálfsvígstilrauna hjá eldri borgurum. Nefndin kanni einnig hvaða leiðir séu heppilegar til að koma í veg fyrir þunglyndi meðal eldri borgara.
    Nefndin verði skipuð níu einstaklingum. Ráðherra skipi formann án tilnefningar og landlæknir, Læknafélag Íslands, Félag hjúkrunarfræðinga, Öldrunarfræðafélag Íslands, Öldrunarráð Íslands, Félag íslenskra öldrunarlækna, Geðhjálp og Landssamband eldri borgara tilnefni einn fulltrúa hver. Nefndin skili niðurstöðum sex mánuðum eftir skipun nefndarinnar.

Greinargerð.


    Eldri borgurum hefur fjölgað mikið hérlendis og þótt umfjöllun um málefni þeirra sé mun meiri en áður er á margan hátt ekki komið nægjanlega til móts við hagsmuni þeirra. Málefni eldri borgara fá sjaldan þann hljómgrunn sem þau eiga skilið og sum svið sem skipta aldraða mjög miklu liggja í þagnargildi. Einn þessara málaflokka er geðheilbrigðisþjónusta og þunglyndi meðal eldri borgara. Ýmsir sérfræðingar, svo sem sviðstjórar á Landspítalanum og geðlæknar, hafa nýverið bent á þörfina í þessum málaflokki.
    Samkvæmt skýrslum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) er þunglyndi einn erfiðasti sjúkdómur mannkyns og getur verið lífshættulegur. Þunglyndi er hins vegar oft læknanlegt og ætíð er hægt að ráða einhverja bót á því. Sjúkdómurinn er einnig dýr, m.a. vegna minni vinnugetu.
    Á Íslandi er talið að um 12.000–15.000 manns þjáist af þunglyndi. Þetta er gríðarlegur fjöldi og þunglyndi eldri borgara er sérstakt vandamál. Vandamálið felst m.a. í því að það er að einhverju leyti falið og ógreint.

Sérstaða þunglyndis eldri borgara.
    Þunglyndi meðal aldraðra getur í sumum tilfellum verið frábrugðið þunglyndi annarra aldurshópa þar sem missir maka eftir langt hjónaband, einmanaleiki, verkefnaleysi, óvirkni, hreyfingarleysi, missir sjálfstæðis, fjárhagsáhyggjur, félagsleg einangrun og jafnvel lífsleiði geta verið veigameiri orsök en hjá öðrum hópum.
    Sömuleiðis geta mörg einkenni þunglyndis verið álitin eðlilegur fylgifiskur öldrunar og skörun getur verið á milli líkamlegrar vanheilsu og aukaverkana lyfjameðferðar. Dvöl á hjúkrunarheimilum getur haft ýmis andleg áhrif á viðkomandi þar sem einstaklingur stendur skyndilega frammi fyrir því að búa við nýjar og aðrar aðstæður í nánu samneyti við nýtt og ókunnugt fólk.

Engin stofnun sem fæst við þunglyndi eldri borgara og engin öldrunargeðdeild.
    Engin stofnun innan heilbrigðisgeirans hér á landi fæst á skipulagðan hátt við þunglyndi eldri borgara. Á geðlæknaþingi sem haldið var í Reykjavík sumarið 2003 kom fram hjá Ásgeiri Bragasyni, öldrunargeðlækni í Ósló og formanni öldrunardeildar norska geðlæknafélagsins, að sl. 10 ár hafi uppbygging á öldrunargeðþjónustu í Noregi verið hröð og einungis tvö af 19 fylkjum Noregs bjóði ekki upp á slík úrræði nú. Að sögn Ásgeirs ætti að starfrækja tvær slíkar stofnanir hér á landi miðað við mannfjölda.
    Nú er sömuleiðis engin sérstök öldrunargeðdeild starfrækt á Íslandi. Á Landspítala – Landakoti væri hægt að búa til sérstaka öldrunargeðdeild án mikils kostnaðar þar sem margt fagfólk starfar nú þegar.

Þunglyndi eldri borgara ekki rannsakað hér á landi.
    Gott starf hefur þó verið unnið hér á landi í tengslum við þunglyndi. Hjá landlæknisembættinu er sérstakt fræðslu- og forvarnaverkefni í gangi sem kallast Þjóð gegn þunglyndi og er það samvinnuverkefni fjölmargra aðila. Hjá Geðrækt, sem er samstarfsverkefni landlæknisembættisins, geðsviðs Landspítala – háskólasjúkrahúss, Heilsugæslunnar í Reykjavík og Geðhjálpar, hefur þunglyndi eldri borgara verið efni sérstaks þemamánaðar undir yfirskriftinni Geðheilsa eldri landsmanna – lyf eru ekki lausn við leiða.
    Þunglyndi eldri borgara hefur þó ekki verið rannsakað sérstaklega hér á landi og á nefndin að bæta úr því auk þess að meta umfang þess og möguleg úrræði og forvarnir. Með greiningu á þunglyndi eldri borgara má auka þekkingu á þunglyndi meðal þessa fólks í þeirri von að draga megi úr tíðni þess, gera meðferð skilvirkari og fækka sjálfsvígum.

Sjálfsvíg eldri borgara.
    Mikilvægt er að skoða tíðni sjálfsvíga og sjálfsvígstilrauna eldri borgara, en að sjálfsögðu ber að nálgast slíkt af mikilli varúð og nærgætni. Sjálfsvíg eldri borgara hafa lengi verið feimnismál hér á landi eins og víða annars staðar. Sumir telja að sjálfsvígstíðni meðal aldraðra sé hærri en opinberar tölur segja til um. Víða erlendis, t.d. í Bandaríkjunum, er sjálfsvígstíðni hæst á meðal karlmanna sem eru eldri en 85 ára.
    Það er því nauðsynlegt að meta umfang þessa vanda til að geta brugðist við honum og spornað gegn þessari vá. Lykilatriðið er að greina vandamálið svo að hægt sé að bregðast rétt við því.

Sérstækar lausnir fyrir aldraða.
    Mögulegar úrlausnir vegna þunglyndis eldri borgara þurfa að vera sértækar og sérsniðnar að aldurshópnum. Nefndinni ber að skoða möguleika til að bregðast við þunglyndi eldri borgara, svo sem hvaða úrræði séu nú þegar til og hvað þurfi að bæta. Forvarnir gegn þunglyndi eru einnig afar mikilvægar. Það má leiða líkum að því að sérstök úrræði þurfi í forvörnum þegar kemur að öldruðum. Þunglyndi, kvíði og einmanaleiki á ekki vera eðlilegur fylgifiskur efri áranna.
    Í ljósi mikillar notkunar á geð- og þunglyndislyfjum hér á landi er nauðsynlegt að bregðast við þunglyndi með öllum tiltækum leiðum. Tilhneigingin hefur verið að leysa þennan vanda meðal eldri borgara með lyfjagjöf í stað annarrar meðferðar. Það er hins vegar nauðsynlegt að huga einnig að annars konar meðferð samhliða lyfjameðferð eða í staðinn fyrir hana, t.d. að auka félagslega ráðgjöf og auðvelda vitjanir til öldrunarlækna og sálfræðinga á heilsugæslustöðvum. Sömuleiðis getur aukin hreyfing verið skynsamleg leið til að sporna gegn þunglyndi og því mikilvægt að fólk hafi aðstöðu til hennar.

Fagaðilar jákvæðir á þingmálið.
    Eldri borgurum fjölgar sífellt og til ársins 2010 mun landsmönnum 65 ára og eldri fjölga um 11% og landsmönnum 80 ára og eldri um 29%. Hætt er við að þunglyndi meðal eldri borgara verði að meiri háttar heilbrigðisvandamáli ef ekki er brugðist hratt og rétt við. Skipun nefndar sem rannsaki þessi mál, eins og þingsályktunartillagan gerir ráð fyrir, er því brýnt verkefni og ætti að mati flutningsmanna að hrinda í framkvæmd sem fyrst.
    Þessi þingsályktunartillaga var lögð fram á síðasta þingi, 131. löggjafarþingi (þskj. 71, 71. mál), en varð ekki útrædd. Allflestir fagaðilar sem gáfu umsögn um málið voru sammála um að þörf væri á rannsóknum á þunglyndi meðal eldri borgara og fögnuðu tillögunni. Má þar nefna landlækni, stjórn Samtaka heilbrigðisstétta, Félag eldri borgara, Læknaráð og Öldrunarfræðafélag Íslands.