Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 629, 132. löggjafarþing 314. mál: hollustuhættir og mengunarvarnir (úttekt faggilts aðila).
Lög nr. 125 19. desember 2005.
Ráðherra ákveður í reglugerð kröfur um gæðastjórnun og innra eftirlit í fyrirtækjum sem eru eftirlitsskyld samkvæmt lögum þessum. Heimilt er ráðherra að kveða þar á um að innra eftirlit skuli að hluta eða í heild sæta úttekt faggilts aðila. Þar skal einnig m.a. kveðið á um umfang opinbers eftirlits og ákvörðun eftirlitsgjalda sem taka mið af innra eftirliti þeirra fyrirtækja sem eftirlitið beinist að.
Þingskjal 629, 132. löggjafarþing 314. mál: hollustuhættir og mengunarvarnir (úttekt faggilts aðila).
Lög nr. 125 19. desember 2005.
Lög um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, með síðari breytingum.
1. gr.
23. gr. laganna orðast svo:Ráðherra ákveður í reglugerð kröfur um gæðastjórnun og innra eftirlit í fyrirtækjum sem eru eftirlitsskyld samkvæmt lögum þessum. Heimilt er ráðherra að kveða þar á um að innra eftirlit skuli að hluta eða í heild sæta úttekt faggilts aðila. Þar skal einnig m.a. kveðið á um umfang opinbers eftirlits og ákvörðun eftirlitsgjalda sem taka mið af innra eftirliti þeirra fyrirtækja sem eftirlitið beinist að.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 9. desember 2005.