Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 452. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 676  —  452. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um lyfjaverð í heildsölu.

Frá Ástu Möller.



    Hvernig hefur miðað að ná markmiðum um að lyfjaverð í heildsölu á Íslandi verði sambærilegt við meðalverð annars staðar á Norðurlöndum, sbr. samkomulag heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra og Félags íslenskra stórkaupmanna frá júlí 2004 um lækkun lyfjaverðs, og að hvaða leyti hafa þessi markmið um lækkun lyfjaverðs í heildsölu birst í lækkun lyfja í smásölu til neytenda?


Skriflegt svar óskast.