Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 460. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 685  —  460. mál.




Fyrirspurn



til forsætisráðherra um nefndarskipan og kynjahlutföll.

Frá Katrínu Júlíusdóttur.



     1.      Hvaða nefndir og starfshópar á vegum ráðuneytanna og undirstofnana þeirra hafa verið settar á laggirnar frá því í nóvember 2004, sundurliðað eftir ráðuneytum?
     2.      Hver eru kynjahlutföll í fyrrgreindum nefndum? Svar óskast sundurliðað eftir ráðuneytum og nefndum eða starfshópum.


Skriflegt svar óskast.