Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 477. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 705  —  477. mál.




Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um þjónustu við börn og unglinga með geðraskanir.

Frá Valdimar L. Friðrikssyni.



     1.      Hvað líður athugun ráðuneytisins á tillögum sem fram koma í skýrslu Kristjáns Más Magnússonar frá 31. ágúst 2004 um „skilgreiningu þriggja þjónustustiga í málefnum barna og unglinga með geðraskanir og aðgerðir til að auka samþættingu þjónustunnar“?
     2.      Hefur ráðuneytið mótað afstöðu sína til þeirra tillagna sem fram koma í skýrslunni?
     3.      Ef nefnd hefur verið sett í málið, hverjir eiga sæti í henni, hvenær hóf hún störf og hvenær á hún að ljúka störfum?


Skriflegt svar óskast.