Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 484. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 715  —  484. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um sjúkrahústengda heimaþjónustu fyrir aldraða á vegum Landspítala – háskólasjúkrahúss.

Frá Ástu R. Jóhannesdóttur.



    Eru uppi áform um að koma á sjúkrahústengdri heimaþjónustu fyrir aldraða á vegum Landspítala – háskólasjúkrahúss? Ef svo er, hvenær má gera ráð fyrir að hún verði að veruleika?