Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 505. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Prentað upp.

Þskj. 738  —  505. mál.
Viðbót. Skriflegt svar.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um Álftanesveg.

Frá Söndru Franks.



     1.      Hvenær er áformað að bjóða út gerð nýs vegar á Álftanesi syðra?
     2.      Hve mikið er áætlað að lagning hans kosti?
     3.      Hve mikið er lagt til hans í fjárlögum yfirstandandi árs?
     4.      Hvenær er áætlað að gerð hans verði lokið?


Skriflegt svar óskast.