Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 522. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 764  —  522. mál.




Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um styrki til kjörforeldra ættleiddra barna.

Frá Hlyni Hallssyni.



     1.      Hver er afstaða ráðherra til þess hvort styrkja beri kjörforeldra ættleiddra barna frá útlöndum líkt og gert er annars staðar á Norðurlöndum?
     2.      Hefur einhver athugun og undirbúningsvinna farið fram í ráðuneytinu um málið?