Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 524. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 766  —  524. mál.




Fyrirspurn



til landbúnaðarráðherra um innflutning á landbúnaðarvörum.

Frá Þuríði Backman.



     1.      Hver er afstaða ráðherra til innflutnings á kjöti frá Argentínu með tilliti til þess að á nokkrum landsvæðum þar hefur nú, í annað sinn á fimm árum, komið upp gin- og klaufaveiki í nautgripum?
     2.      Hefur ráðherra í hyggju að setja frekari reglur um innflutning á landbúnaðarvörum frá löndum þar sem hættulegir búfjársjúkdómar hafa komið upp, svo sem um það hve langur tími skuli líða frá því að síðasta tilfelli greindist þar til innflutningsleyfi fást afgreidd?