Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 532. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 779  —  532. mál.




Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um malarnám í Ingólfsfjalli.

Frá Magnúsi Þór Hafsteinssyni.



    Hafa stjórnvöld einhver úrræði til að stöðva malarnám í Ingólfsfjalli eða sjá til þess að það fari þannig fram að ásýnd fjallsins verði ekki eyðilögð frekar?