Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 548. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Prentað upp.

Þskj. 796  —  548. mál.
Ráðherra.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um gildistíma ökuskírteina.

Frá Jóni Gunnarssyni.



    Telur ráðherra koma til greina að breyta ákvæðum 48 gr. reglugerðar nr. 501/1997, um ökuskírteini, í þá veru að gildistími ökuskírteina fólks sem er 80 ára og eldra verði sá sami og 72–80 ára fólks, þ.e. tvö ár?