Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 571. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 826  —  571. mál.




Fyrirspurn



til viðskiptaráðherra um upplýsingar frá Fjármálaeftirlitinu.

Frá Sigurjóni Þórðarsyni.



    Hver er afstaða ráðherra til þess að Fjármálaeftirlitið neitar að veita alþingismanni upplýsingar um hverjar urðu lyktir kærumáls sem upp kom í ágúst 2003, þegar hlutabréf ríkisins í Íslenskum aðalverktökum voru seld?