Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 608. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 892  —  608. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um alþjóðleg útboð.

Frá Jóni Kr. Óskarssyni.



     1.      Hvernig eru tilboð metin í verk sem ríkið býður út á alþjóðlegum markaði?
     2.      Telur ráðherra koma til greina að taka tillit til innlendra tekna sem verkefni skapa, séu þau unnin hérlendis, við samanburð á tilboðum?


Skriflegt svar óskast.